Brandari dagsins!

Hvaða munur er á fíl og póstkassa?

- Nú veistu það ekki! Ég ætla sko aldrei að láta þig setja bréf í póst fyrir mig!!

Auglýsing

Innskráningar kubbur

blogg nr. 38 - hætt að blogga...

03. mars 2008 klukkan 17:05
jæja, ég er hætt að blogga... allaveganna í bili...

bless bless
Hildur Kjartansdóttir
1 athugasemd

blogg nr. 37 - gelukkig nieuwjaar! = gleðilegt nýtt ár!

12. janúar 2008 klukkan 18:40
Já, gleðilegt nýtt ár!

Ég skrapp til Hollands þann 29.desember síðastliðinn og kom heim 6. janúar. Lilja bað mig um smá ferðasögu og auðvitað hlýðir maður og skrifar hana... :)
Ég er búin að skrifa eina slíka í litla bók sem ég á og skrifa bara upp eftir því og bæti svo kannski einhverju sniðugu við... :P
Ég og Þórhildur lögðum af stað snemma morguns þann 29.desember 2007. Á flugvellinum úti í Amsterdam, Schiphol, biðu Lieke, Jeroen, Mattijs og Maartje eftir okkur.
Í ferðinni gerðum við margt okkur til dundurs. Til dæmis fórum við þrisvar sinnum til Utrecht( 7-8  mín í lest ), Radu og Merel fengu að koma með í eitt skiptið :). Við fórum líka til Amsterdam þar sem við sáum m.a. safnið um Önnu Frank(biðum í hálftíma röð til að komast þangað inn! og hittum íslenska stelpu sem við þekkjum í röðinni(Kristínu Sveinsdóttur)!! sem var snilld, því við höfðum hitt hana á flugvellinum hérna heima á leiðinni út og hún sat svo beint fyrir framan okkur í vélinni :P).
Á nýársdag fórum við 7 saman til Scheveningen þar sem fullt af fólki stakk sér út í ískaldan sjóinn. Þórhildur segir að sjaldan eða aldrei hafi henni verið eins kalt :P (ég og Radu vorum nógu klár til að sleppa þessu :D ). Að auki var spilað mikið og hlegið enn meira.´
Æðisleg ferð! :D
Aukaefni:
Þegar við fórum til Amsterdam borðuðum við kvöldmat á mjög flottum stað, frekar indverskur á að líta. Klósettin á staðnum voru æði! haha! ótrúlega mikið mósaík og virkilega flott! :P  Ég og Þórhildur fengum okkur kjúkling á teini með kartöflum og salati, ótrúlega gott! Svo fengum við okkur eftirrétt :P
Ég, Þórhildur og Lieke fengum okkur rétt sem kallast á matseðli staðarins:

Sjàrbàt Bàstàni

Sem er glas af ferskum, stórum ávaxtabitum, ávaxtasorbet, einhverju gosi(veit ekki alveg hvernig), rjóma og myntusírópi. Lieke bað um að fá að sleppa sírópinu.
Þegar þetta var borið á borð sagði þjónninn að gerð höfðu verið mistök í eldhúsinu og það vantaði sýrópið í mitt, þannig að ég fékk það í skál með, haha:D
Ég ákvað samt að smakka á því áður en ég sturtaði því í, og svakalega er ég fegin að þau gerðu mistök því sýrópið var VONT! :P haha
Við hlógum og hlógum á staðnum, allan tímann og skemmtum okkur voða vel :).

Daginn eftir Amsterdam, þann 4.janúar 2008, fórum við á æfingu með So Double U. Þórhildur tók þátt en vegna hné"meiðsla" sleppti ég því og fór á fund með leiðtogunum um það, hvernig breyta og bæta megi Ice-step :) mjög fínn fundur.

Svo kom ég heim á sunnudaginn síðasta og byrjaði í skóla og vinnu á mánudag, ýkt hress.

Á þriðjudagsmorguninn mætti ég niður í Orkuhús klukkan 8 í röntgen og segulómun á hnjám. Vonandi fæ ég eitthvað jákvætt/gagnlegt út úr því á mánudag.

Búið í bili :)

p.s. komment vel þegin =)

Hildur Kjartansdóttir
5 athugasemdir

blogg nr. 36 - jólin eru að koma...:|

16. nóvember 2007 klukkan 15:58
Ég trúi því ekki! Það eru um 2 vikur í jólapróf!

Ég er bara nýbúin að átta mig á því.. Það eru bara um 42 dagar þangað til ég fer til Hollands, og þá verða jólin búin! Hissa

Jedúddamía, tíminn líður svo sannarlega hratt. Mér finnst svo stutt síðan Jeroen kom til Íslands...Hann fór á þriðjudaginn var, búinn að vera í 10 vikur maðurinn!

En jæja... ætli maður sé ekki bara að verða gamall...Ullandi

Kvennaskólinn fór á Leg í Þjóðleikhúsinu á þriðjudaginn síðasta, ágætis sýning. Miðað við það sem ég hafði heyrt hélt ég reyndar hún væri skemmtilegri..Óákveðinn En jújú, það voru alveg nokkur mjög fyndin atriði...Hlæjandi

 Perralegi kvensjúkdómalæknirinn...Glottandi Pabbinn og mamman...Glottandi


Hvað er málið með veðrið? Það er bara næstum búin að vera rigning/úði/slæmt skyggni síðan í ágúst! búin að fá einu sinni smá snjó en annars eiginlega bara rigning.. ég fíla það ekki nógu vel Fýldur en við fáum víst engu svakalegu um það ráðið...

Jæja, ég er farin í Bubble struggle 2
Hildur Kjartansdóttir
4 athugasemdir

blogg nr. 35 - skóli!

25. október 2007 klukkan 17:32
Hæhæ.... ég var búin að skrifa voða langt og flott blogg um daginn en svo fraus tölvan þannig að ég lét pirrings-bloggið bara standa..:P en núna hins vegar er ég orðin solldið þreytt á því að þegar ég opna internet glugga kemur alltaf þessi mynd upp.... Þannig að ég ákvað að gera eitthvað í þessu..:P

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðustu daga og vikur í skólanum og slíku..

Fyrstu helgina í október fór ég á skólamót KSS í Vatnaskógi og skemmti mér konunglega, að vanda ;) Það er  bara svo slakandi, þægilegt og skemmtilegt að fara á svona mót...:D svo þegar maður er með UNO þá er allt skemmtilegt...:P

Að tveimur vikum liðnum(síðustu helgi) fór ég á landsmót æskulýðsfélaga á Hvammstanga. Þangað fór næstum allur danshópurinn því við áttum að sýna dans á föstudeginum og vera með workshop á laugardeginum. Okkur var vel fagnað og námskeiðið fylltist mjög fljótt, eitthvað um 45-50 manns! skemmtilegt það. Ég var ásamt 2 öðrum upp á sviði að kenna og hitinn þar uppi var svakalegur! og þar stóðum við í 3 tíma að kenna dans....gera sömu sporin aftur og aftur og aftur og aftur... en þetta var mjög skemmtilegt þrátt fyrir gígantískan hita...

Svo er maður alltaf busy í skólanum og öllu hinu, og þar ber helst að nefna dansinn, vinnuna, leiðtogaskóla(reyndar bara einu sinni á tveggja vikna fresti), KSS fundir, ...


Eins og ég sagði var þetta blogg bara svo ég þyrfti ekki að horfa á pirrings-myndina lengur...
....þarf að fara að læra!

Hildur
Hildur Kjartansdóttir
2 athugasemdir

blogg nr. 34 - Pirringur

10. september 2007 klukkan 23:56

reiður kall

Don´t ask!
Hildur Kjartansdóttir
5 athugasemdir

blogg nr. 33 - Holland, Belgía, skóli....

29. ágúst 2007 klukkan 18:08

Hæhæ, langt  síðan síðast!

Jæja, smá stikkorð yfir það sem hefur gerst síðan ég var í Kanada...:P solldið langt síðan en.... betra er seint en aldrei...

   

  • Þegar ég kom heim fór ég að vinna afleysingar í Ölveri, samtals 10 daga. Sú vinna var æði og ég er eiginlega alveg búin að ákveða að vinna þar næsta sumar, amk einhverjar vikur.
  • Svo fór ég að vinna á Select og var þar í einhverjar 2 vikur eða rétt rúmlega það.
  • Þá var ferðinni haldið til Hollands:

Þangað fór ég með Ice-step hópnum sem ég er í. Við fórum í rútu út á völl og flugum þaðan til Amsterdam. Jeroen og Lieke tóku á móti okkur þar og við tókum 2 lestar til Houten þar sem við bjuggum í 1 viku. Jeroen og Lieke voru fulltrúar So-double-u hópsins sem héldu mótið úti. So-double-u er semsagt svipaður hópur og við erum í hér heima nema að þau eru búin að vera saman í nokkur ár en við erum bara búin að vera til í 1 ár. Þrátt fyrir það erum við orðin "heimsfræg á Íslandi" eða þeas í kirkjum landsins :D og það er stuð...
Þegar við svo komum til Houten voru Hollendingarnir og Rúmenarnir í kirkjunni og við gátum hitt allt fólkið aftur sem við kynntumst svo vel í fyrra:D Gleði gleði...
Svo var bara haldið til gestgjafanna (host-families) og borðað og svo hvíldum við okkur bara...
Prógrammið byrjaði svo á fullu og voru mikið af stepp- og söngæfingum. Þegar þeirri viku lauk fórum við öll í rútu og hópurinn splittaðist. Íslendingarnir fóru til Bergen ob Zoom, Bandaríkjamennirnir til Tholen, og svo framvegis... skiptumst semsagt á 4 staði. Ég og Anna lentum hjá yndislegri fjölskyldu sem ég ætla ekki að lýsa hér(alltof mikið að segja ;D) þannig að ef þið viljið vita e-ð um þau verðiði bara að spyrja... Þau voru,vægast sagt, mjög skrautlegt ofsatrúarfólk á bóndabæ. Við Anna hlógum okkur í svefn á kvöldin og þetta var bara gaman....
Að 5 dögum liðnum hittum við allt fólkið aftur í Antwerpen í Belgíu. Þar byrjaði Pílagrímaferðin(festival eða námskeið, veit ekki alveg hvernig á að útskýra þetta) Þar gistum við á Youth-hosteli öll saman, voða gaman :D
Eftir svona ferðir er alltaf erfitt að kveðja en ég held að margir úr hópnum öllum ætli að fara til Praag á næsta ári og svo er planið að Íslendingarnir, Hollendingarnir og Rúmenarnir heimsæki Bandaríkjamennina 2009! :D sem þýðir að við megum ekki hætta með þennan líka ágæta danshóp sem við stofnuðum í fyrra!

Það sem mér fannst mega bæta við ferðina var að við vorum frekar ósátt með að vera skipt niður í miðjukafla ferðarinnar. Við erum orðin svo góðir vinir að við vildum bara vera saman báðar vikurnar :) og okkur, amk Íslendingunum, fannst miðvikan vera illa skipulögð en það var samt ákveðið voða seint að við ættum að vera þar og fólkið sem var með okkur fékk mjög stuttan fyrirvara um komu okkar. Svo þetta var ágætt.

Það sem var hinsvegar frábært við þessa ferð var að hitta alla aftur! það var æði! við kynntumst líka mjög vel innbyrgðis sem er gott fyrir hópinn. Við lærðum líka fullt af dönsum og ætlum að halda áfram að æfa þá og geta þá haft fjölbreytni á sýningunum okkar.
Þessi ferð var ÆÐISLEG!




Svo fór ég aftur að vinna en bara í 3 daga því þá tók skólinn við. Og nú er komin vika síðan hann byrjaði.



Á þriðjudaginn næsta kemur svo Hollendingur(Jeroen) til landsins og ætlar hann að búa heima hjá mér í einhvern tíma. Hann er að byrja í starfsnámi í Borgarleikhúsinu og ætlar að nota tækifærið og vera þjálfarinn okkar í ice-step á meðan :D Jeroen verður á landinu í 10 vikur og kannski verður hann allan tímann hjá mér og kannski fer hann til einhverrar annarar.... það á allt eftir að koma í ljós!

En hey, ég er farin að taka mig til fyrir æfingu

Komið gott í bili, bæbæ

Hildur Kjartansdóttir
2 athugasemdir

blogg nr. 32 - Komin heim frá Kanada

28. júní 2007 klukkan 16:30

hæhæ, þá er maður kominn heim frá Kanada.

Smá ferðasaga:

  • lögðum af stað þann 13. ágúst (flug klukkan 16:35)
  • lentum svo í Minneapolis um klukkan 18:00 að staðartíma(flugið var tæpir 6 klst.)
  • þar tóku May og Peter á móti okkur og fóru með okkur á hótelið (May er frænka okkar og Peter er sonur hennar, við bjuggum hjá Peter úti og May á heima í næsta húsi.)
  • Hótelið heitir Comfort inn og var svona lala, ekkert æði en ágætt samt (Gistum semsagt ekki í hótelinu með vatnsrennibrautagarðinum á leiðinni út eins og ég hélt). Gistum þarna í eina nótt.
  • Lögðum svo af stað um morguninn. 10 tíma keyrsla til Gimli! :| en það hafðist...

svo bara það sem við gerðum, ekkert ýtarlegt og kannski ekki alveg í réttri tímaröð...

  • fórum í búðina þeirra sem var opnuð daginn sem að við komum til Gimli, Sobeys.
  • Fórum á hafnaboltaleik
  • dýragarð í Winnipeg
  • að versla í Winnipeg(klukkutíma akstur þangað frá Gimli)
  • Red River Ax(Axe?:/), það er Tivoli sem var opið í einhvern mánuð eða eitthvað.
  • Allskyns skoðunarferðir um Gimli með May
  • Bíltúr með Ron og Effie(Ron er frændi Peter og Effie konan hans) til Hecla Island.

Já, þetta er svona það helsta sem við gerðum í Kanada, vona bara að ég sé ekki að gleyma einhverju merkilegu :P.
Smá ættfræði :P
Við bjuggum semsagt á bænum hjá Pétri og Köru og börnunum þeirra, Rori(Aurora) og Stefan. Þau eiga heima á bæ rétt fyrir utan Gimli. Mamma hans Peter, May, á heima í næsta húsi og hún var solldið mikið með okkur. Pabbi hennar Köru, Ingvar, var líka með okkur einhvern hluta ferðarinnar. 

Á sunnudaginn var, 24.júní, lögðum við af stað aftur til Minneapolis, við fjögur, Peter og Kara. Við vorum komin heim á hótelið í Minneapolis rétt um miðnætti sama kvöld. Daginn eftir fórum við í Minnespta Zoo sem á víst að vera ótrúlega stór og skemmtilegur en við fórum á höfrungasýningu sem var meira eins og kennslustund(hvernig þeir gefa frá sér hljóð og svo framvegis....) og svo fórum við í lest um dýragarðinn af því að Peter og Kara gerðu það síðast og þá var það svo gaman. Núna hinsvegar voru komin lauf á trén og mér leið helst eins og ég væri í lest um grasagarð! Konan sem var að segja okkur hvað væri í kring var meira að segja farin að TALA UM laufin á trjánum!!! allaveganna, ef við hefðum labbað hefðum við líklega séð meira. Í dýragarðinum er svo þrívíddarbíó og auðvitað skelltum við okkur í svoleiðis og í þetta skiptið var mynd um risaeðlur. Hún var svosem ágæt...
Skruppum svo aðeins í Mall of America.
Næsti dagur fór í að versla meira, bæði í Albertville(fullt af outlet búðum) og í Mall of America. Fórum svo öll út að borða.
Í gær, miðvikudaginn 27. ágúst lögðu María, Peter og Kara af stað aftur til Gimli þar sem María ætlar að vera næstu 6 vikurnar. Þá fórum ég, mamma og pabbi, upp á herbergi að sækja dótið okkar þar sem það þurfti að tæma það klukkan 11.00 en þar sem að flugið okkar var ekki fyrr en 19.20 fórum við út í Mall of America til að eyða tíma. Mikið svakalega er leiðinlegt að bíða svona! Jeminn eini! 

Svo klukkan 16.00 tókum við shuttler(bíl á vegum hótelsins niður á flugvöll) og þar þurftum við að bíða heillengi líka. Flugið var 5klst og 35 mín og það var alltof langt! Sérstaklega þar sem að það sat geðveikt pirrandi fólk fyrir framan okkur(voru alltaf með e-ð vesen), maturinn var versti flugvélamatur sem ég hef á ævinni smakkað!(mamma var sammála) og svo var hitinn í vélinni alveg til að drepa mann. Svo var dagskráin í sjónvarpinu hjá þeim alger hörmung.... jæja, hætt að kvarta og farin að klæða mig í e-ð annað en náttföt...





 
 

Hildur Kjartansdóttir
5 athugasemdir

blogg nr. 31 - einkunnir...

22. maí 2007 klukkan 13:19
Hæhæ, ég fékk einkunnirnar mínar í morgun og er bara þokkalega ánægð :D

Það fór svona:

                                Haustönn                Vorönn                  Lokaeinkunn
Danska                     8,0                                                        8,0
Efnafræði                 9,0                                                        9,0
Enska                                                       7,0                         7,0
Handmennt               10,0                                                      10,0
Íslenska                    8,0                          7,0                         7,5
Íþróttir                     10,0                         10,0                       10,0
Jarðfræði                  7,0                          6,0                         6,5
Lífsleikni                                                    9,0                         9,0
Nattúruvísindi                                           8,0                         8,0
Stærðfræði               8,0                          8,0                         8,0
Þýska                         9,0                         9,0                          9,0

Vegið meðaltal: 8,3


svona var það....

Nenni samt ekki að skrifa neitt meira núna...:P er svo upptekin á MSN.
Hildur Kjartansdóttir
6 athugasemdir

blogg nr. 30 - SUMARFRÍ!

16. maí 2007 klukkan 19:07

já, ég er komin í SUMARFRÍ! Hlæjandi

...vildi bara deila þessu með ykkur.

Ég fór semsagt í próf í morgun/hádeginu klukkan 10:30 og var búin uþb einni klukkustund síðar. Við skelltum okkur þá saman, ég, Birta, Krissa og Lilja upp í Kringlu og fengum okkur að borða. Þaðan lá leið okkar í Hallgrímskirkjuturn. Það var nefninlega á lífslistanum hennar Lilju að verae uppi í turninum þegar klukkurnar hringja, svo nú getur hún strikað yfir það Glottandi.

Þá var komið hið ágætasta veður og við fengum okkur ís í Perlunni...

Þar fékk Krissa líka þessa fantagóðu hugmynd að fara upp í bústað! Hún fékk leyfi til þess að bjóða vinkonum sínum í bústaðinn og þangað ætlum við á eftir! gaman gaman....!

Annars er plan morgundagsins að njóta þess að vera í fríi... JÁ! vááá hvað ég hlakka til... að þurfa ekki að sitja föst við skólabækur...ég er laus við það í einhvern tíma ... Hlæjandi.



                     GLEÐILEGT SUMAR!
 

                         sól

Hildur Kjartansdóttir
4 athugasemdir

blogg nr. 29 - próf...

08. maí 2007 klukkan 15:31

Laulau sagði í commentunum við síðasta blogg að ég væri ekki iðnasti bloggarinn...:P og ég get engan veginn mótmælt því...

en... pabbi hennar Önnu er í aðgerð í þessum töluðu orðum, að ég held, og mig langar að biðja ykkur um að hugsa til hans. Málið er að hann fékk blóðtappa í löppina fyrir örfáum árum, 2-3 árum. Í kjölfar hans fór hann í aðgerð til þess að víkka æðarnar í fótunum en hann fékk semsagt aftur blóðtappa í fótinn á sunnudaginn og læknarnir sáu sér, því miður, ekki fært að gera neitt annað en að fjarlægja fótinn og það er einmitt það sem verið að gera eða á að gera seinna í dag. ÞEss vegna við ég biðja ykkur að hugsa vel til hans, fjölskyldunnar og læknanna...


en annars er ég tiltölulega nýbyrjuð í prófum, búin með 2 af 6. Mér gekk ekkert mjög vel í því íslenskunni á föstudaginn en það er einfaldlega vegna þess hversu leiðinlegt mér þykir að lesa Íslendingasögur og Njála er þar meðtalin...Það er bara eitthvað við þessar sögur sem heilla mig ekki, kannski er það útaf..... uuu...... nei, ég veit það ekki.... þær bara henta mér ekki..

svo var það þýskan í gær, mér gengur nú yfirleitt bara ágætllega í henni svo að mér fannst þetta próf ekkert hræðilegt, þrátt fyrir að ólesni textinn hafi verið örlítið strembin og ég var langt frá því að vera hugmyndagóð í rituninni... en ég vona að ég hafi samt plokkað eitt og eitt stig út úr þessu tvennu :P málfræðin gekk mjööög vel að ég held og ég er bara nokkuð sátt.

Á morgun er svo enskan, ég held að ef ég blogga ekki mikið núna og held áfram að læra orðaforða um tæknifrjóvgun, klónun, kókakólavæðingu og álíka skemmtilegheit ætti þetta ekki að verða neitt vandamál. Helsta vesenið er líklega að læra málshættina og orðatiltækin og svo kannski forskeyti og viðskeyti... en það reddast.

Á föstudaginn er náttúrufræði...haha, það verður skemmtilegt.... hún er búin að gefa okkur lista af fullt af spurningum sem ég get alveg hugsað mér að verði meirihlutinn af prófinu, haha og svo gaf hún okkur líka upp einhver 8 ritgerðarefni sem geta komið. Hún velur svo tvö af þeim og við eigum svo að skrifa um annað þeirra efna á prófinu. Þess vegna getum við verið búin að undirbúa okkur vandlega heima og rúllað rituninni upp.... Hún er svolítið glær, greyið...

Á mánudaginn er stærðfræði..:| hjáááálp! ég hef ekki hugmynd um hvernig það próf mun fara... Við erum, eins og flestir vita sem skoða síðuna, með erlendan kennara og lendum þess vegna stundum/oft í tungumálaerfiðleikum...:/ Þ.e. að hún er ótrúlega klár og kennir vel en ef svo óheppilega vill til að maður skilji ekki það sem fer fram þá.... er maður bara óheppinn... hún á nefninlega í svolitlum vandræðum með að útskýra á annan hátt en fyrst þegar hún sagði það... hún er ágæt greyið...en sjáum til með útkomu vetrarins hjá nemendunum...

Síðasta prófið, og það sem ég kvíði nokkuð fyrir, er svo jarðfræði... Ég veit ekkert við hverju er að búast á þeim bæ... Sá kennari lætur okkur reglulega hafa hefti sem inniheldur slatta af spurningum úr hverjum kafla og næstu tíma á eftir sitjum við sveitt að reyna að finna ut úr þeim og þess má til "gamans" geta að fæst svörin eru í bókinni. Þegar þau eru hálfnuð er næsta hefti dreift.... o.s.frv... Þess vegna safnast verkefnin upp og við ráðum engan veginn við þau!... Ég og Lilja ákváðum að hittast á föstudagskvöldi nú fyrir stuttu og hún gisti hjá mér. Við höfðum nefninlega ákveðið að hjálpast að við verkefnin og vöknuðum klukkan 10 á laugardagsmorgninum til að leysa verkefni... Við hættum ekki fyrr en klukkan 18.00! þá höfðum við reyndar tekið okur pásu... en vorum samt búnar að vera í um 6 tíma að gera jarðfræði þegar við gáfumst upp.... og við náðum ekki að klára það sem við áttum eftir....en, svona er lífið og maður verður bara að sætta sig við það....

Þetta eru næstu dagar í hnotskurn.. ekki það besta sem hægt er að óska sér en.... ég sé fyrir endann á því og ég hlakka gríðarlega mikið til sumarsins..!

Ég bendi ykkur, kæru lesendum, einnig á það að danshópurinn Ice-step mun vera í Kastljósinu á kvöld, miðvikudag eða fimmtudag.... hvet ykkur til að fylgjast með...:P

Komið gott í bili...
og Gleðilega Eurovision-helgi!!    Áfram Ísland

Hildur Kjartansdóttir
5 athugasemdir